26. Landsmóti UMFÍ lauk í gær á Akureyri þar sem UMFG átti þátttakendur í nokkrum greinum og stóðu þeir sig með mikilli prýði, unnu gull, silfur og brons. Um 40 keppendur voru frá UMFG að þessu sinni sem er líklega met.
UMFG varð í 3. sæti í heildarstigakeppninni í júdó en Grindvíkingar tefldu fram vaskri sveit.
Sunddeildin varð í 5. sæti í stigakeppninni með 82 stig þar sem Hilmar Örn Benediktsson varð í 3. sæti í 200 metra bringusundi og Erla Sif Arnardóttir í 2. sæti í sömu sundgrein, í 400 metra fjórsundi voru karla og kvennaliðin bæði í 4. sæti.
Strákarnir í körfunni urðu í 4. sæti eftir naumt tap gegn UMSK í leiknum um bronsið en kvennalið UMFG varð Landsmótsmeistari en stelpurnar unnu alla sína leiki nokkuð örugglega.