Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur stendur nú sem hæst. Í kvennaflokki er Arnfríður I. Grétarsdóttir (Bjögga) langefst eftir tvo hringi af þremur. Hún hefur leikið hringina á 183 höggum, Ingveldur Eiðsdóttir kemur næst á 202 og Margrét Brynjólfsdóttir er þriðja á 206.
Hjá körlunum er Hávarður Gunnarsson efstur eftir tvo hringi af fjórum. Hann fór hringina á 146 höggum en síðan koma jafnir í 2.-3. sæti, Ingvar Guðjónsson og Gunnlaugur Sævarsson á 155 höggum.
Alls taka 48 karlar þátt í meistaramótinu og 9 konur, þátttakendur eru því alls 57. Veðrið hefur leikið við kylfingana fyrstu tvo dagana. Í dag hvíla öldungaflokkur, kvennaflokkur og unglingaflokkur.
Stöðuna í flokkunum má sjá http://www.golf.is/pages/forsida1/motaskra/upplysingarummot/