Grindvíkingur vikunnar er Páll Valur Björnsson, yfirflokksstjóri Vinnuskóla Grindavíkur og umsjónarmaður nýja tjaldsvæðisins. Hann hefur haft í nógu að snúast í sumar enda stýrir hann um 150 ungmennum í Vinnuskólanum. Páll Valur svaraði nokkrum laufléttum spurningum.
Nafn? Páll Valur Björnsson.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Huldu Jóhannsdóttur og eigum við tvö börn, þau Ólöfu Helgu 24 ára og Björn Val 18 ára.
Starf? Yfirflokkstjóri Vinnuskóla Grindavíkur.
Uppáhalds-
...maturinn? Villibráð er í miklu uppáhaldi annars ét ég allt sem að kjafti kemur.
...drykkurinn?
Eftir að ég hætti í brennivíninu hef ég átt í bölvuðu basli með að finna mér uppáhaldsdrykk.
...staðurinn? Grindavík að sjálfsögðu og svo kemur gamli góði Vopnafjörðurinn sterkur inn.
...leikarinn? Bergur og Víðir í Gralinu eru mínir menn. Frábærir báðir tveir.
...bókin? Veröld sem var eftir Stefan Zweig er rosalegt rit.
...íþróttamaðurinn? Grindavík á marga frábæra íþróttamenn sem eru sannarlega stolt okkar hér í bænum. Fyrir mér hefur Gummi Braga allt verið fremstur meðal jafningja, frábær íþróttamaður og fyrirmynd fyrir alla sem vilja ná langt.
...liðið? Að sjálfsögðu Grindavík
Ef þú værir einn á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér?
Sjónvarp og gervihnattadisk til að ná enska boltanum. Góðan hníf, steikarpönnu og Biblíuna.
Hvað er best við Grindavík?
Persónulega finnst mér nánast allt gott við þennan yndislega bæ, gott atvinnuástand, fjölbreytt íþróttalíf, mikill mannauður og svo er menningin á blússandi uppleið.
Hvernig gengur að eiga við krakkana í unglingavinnunni?
Það gengur bara mjög vel. Auðmýkt, skilningur, kærleikur og þolimæði er það sem þarf til að hlutirnir gangi vel. Aðalatriðið er að gleyma því ekki að þetta eru bara börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í vinnu. Við lifum á breyttum tímum, áður fyrr byrjuðu börn að vinna miklu fyrr og hugsunin var allt önnur gagnvart vinnu ungmenna.
Hvaða verkefni eruð þið aðallega að fást við?
Okkar helstu verkefni eru að halda bænum fallegum. Við erum að slá opin svæði og garða hjá eldri borgurum, reyta arfa, mála og allt sem til fellur.
Þú sérð einnig um nýja tjaldsvæðið, hvaða viðbrögð hafið þið fengið hjá gestum þar?
Viðbrögð hafa verið mjög góð og jákvæð þeir sem gist hafa hjá okkur eru alveg ljómandi ánægðir með tjaldsvæðið.
Hvernig hefur aðsóknin verið?
Aðsókn hefur verið mjög góð vel á annað þúsund gestir hafa komið frá opnun í júní.
Eitthvað að lokum?
Ég vil þakka Grindvíkingum fyrir hlý orð í garð vinnuskólans þau hafa glatt okkur öll afskaplega mikið. Okkar meginmarkmið fyrir utan að kenna ungviðinu að vinna er að kenna þeim að vera meðvituð um umhverfi sitt og að bera virðingu fyrir bænum sínum. Allar ábendingar frá bæjarbúum eru vel þegnar, það má alltaf gera betur og ef við hjálpumst öll að þá má gera Grindavík að enn fallegri og betri bæ.