Grindavíkurbær tekur nú þátt í forvarnarverkefni SAMAN-hópsins sem ber yfirskriftina „Höngum saman í sumar". Rannsóknir hafa sýnt að sumarið er áhættutími í lífi unglinga vegna þess að frjálsræði eykst, aðhald minnkar og margir unglingar fara að prófa sig áfram með áfengi og jafnvel önnur vímuefni.
Um þessar mundir er jafnvel enn meiri ástæða til að huga að börnum og unglingum vegna efnahagsástandsins. Framboð á vinnu hefur minnkað og möguleikar fjölskyldna að kosta tómstundir barna sinna sömuleiðis. Hið jákvæða við þetta er að nú fá margar fjölskyldur tækifæri til að verja meiri tíma saman enda hafa rannsóknir sýnt að samvera foreldra og barna er ein besta forvörnin.
Lögð er áhersla á að gildi samverunnar er ekki fólgið í þeim kostnaði sem í henni felst. „Höngum saman" vísar til þeirra verðmæta sem við þegar eigum í fjölskyldunni og nærsamfélaginu, umhverfinu og náttúrunni. Jafnvel þótt við séum ekki að gera „neitt annað" en að vera saman skipta samverustundirnar miklu máli.
Sumarátak SAMAN-hópsins felst í því að hengja upp glaðlegar sólir með jákvæðum skilaboðum. Markmiðið er að minna foreldra og fjölskyldur á mikilvægi samverustundanna.
Til að koma í veg fyrir að börn og unglingar séu í reiðuleysi og hafi lítið fyrir stafni í sumar viljum við hvetja foreldra til dáða í sínu mikilvæga hlutverki. Íslensk náttúra er stórbrotin og áhugaverður vettvangur útivistar og upplifunar, íslenskt mannlíf einkennist oft af samkennd og því að við erum öll á sama báti. Höngum saman í sumar okkur til ánægju, börnum okkar til gæfu og samfélaginu til heilla.
Unglingar úr Vinnuskólanum hafa nú hengt upp sólir á nokkrum stöðum í Grindavík, m.a. í sundlauginni, verslunum, tjaldsvæðinu og víðar. Eru Grindvíkingar hvattir til að kynna sér þau skilaboð sem koma fram á sólunum.
Sjá nánar á www.samanhopurinn.is