Óhætt er að segja að gestkvæmt hafi verið á íþróttasvæði Grindavíkurbæjar í gær og segja þeir sem til þekkja að met hafi verið slegið. Líklega hafa milli 600 og 700 manns farið í gegnum íþróttasvæðið til keppni, æfinga og fundahalds í tengslum við knattspyrnuna.
Í gær var haldið svokallað Pollamót KSÍ í 6. flokki C og D liða í knattspyrnu á gamla aðalvellinum. Á þriðja hundrað manns, bæði pollar og foreldrar, voru í Grindavík í tengslum við mótið, frá hádegi og fram eftir degi.
U19 ára kvennalandslið Íslands æfði á Grindavíkurvelli í gær en liðið undirbýr sig fyrir lokakeppni EM. Tveir Grindvíkingar eru í liðinu, Elínborg Ingvarsdóttir og Anna Þórunn Guðmundsdóttir.
Þá lék 4. flokkur Grindavíkur gegn Víkingi á Íslandsmóti karla, æfingaleikur fór fram á milli GRV og Vals í meistaraflokki kvenna auk fjölda æfinga hjá UMFG. Meistaraflokkur karla var á æfingu, 3. flokkur drengja og stúlkna auk yngstu flokkanna um morguninn og svo knattspyrnuskólans.
Í félagsheimilinu, gula húsinu svokallaða, var einnig foreldrafundur vegna Símamóts Breiðabliks sem er framundan og jafnframt stjórnarfundur hjá knattspyrnudeildinni. Eflaust gleymist eitthvað í upptalningunni en eins og sjá má var mikið líf og fjör á íþróttasvæði Grindavíkur í gær, frá morgni til kvölds.
Neðsta myndin var tekin í fyrradag af Grindavíkurvelli sem er í algjöru toppstandi þessa dagana. Ef betur er að gáð sést að völlurinn er sleginn í hringi. Hinar myndirnar voru teknar á æfingu hjá knattspyrnuskólanum.