Á dögunum fagnaði knattspyrnudeild UMFG þeim áfanga að 40 ár eru liðin frá því knattspyrnulið Grindavíkur tók í fyrsta skipti þátt í keppni á Íslandsmóti í meistaraflokki. Af því tilefni færði Grindavíkurbær knattspyrnudeildinni að gjöf svokallað markmannsnet sem kemur að góðum notum við markmannsþjálfun. Markmannsnetið var svo tekið í notkun á markmannsæfingu í gær.
Markmannsnetið virkar eins og trampolín, þegar bolta er kastað í netið endurkastast hann. Markmannsnetið býður upp á mikla möguleika í þjálfun og eykur fjölbreytilega æfinga til muna en það verður sífellt algengara að nota það við þjálfun í yngri flokkum.
Reglulegar markmannsæfingar hafa verið hjá knattspyrnudeildinni síðan í fyrrahaust fyrir alla flokka.
Á myndinni eru markverðirnir Ingimar og systurnar Helga Dóra og Halla sem fengu að prófa markmannsnetið í gær.