Í dag, miðvikudaginn 8. júlí nk. kl. 17:00 verður haldinn opinn kynningarfundur í Saltfisksetrinu í Grindavík, á vegum Tæknisviðs Grindavíkurbæjar. Þar verða kynntar nokkrar breytingar á aðalskipulagi, m.a. vegna hesthúsasvæðis og Suðurstrandarvegar.
Eftirfarandi mál verða kynnt á fundinum í dag:
- Aðal- og deiliskipulagsbreyting vegna hesthúsasvæði
- Aðalskipulagsbreyting vegna Suðurstrandavegur
- Aðalskipulagsbreyting vegna SV-Línur
- Aðalskipulagsbreyting vegna Vatnskarðsnámur
Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á skipulagsmálum.