Gæsluvöllurinn við Hraunbraut í Grindavík opnaði á mánudaginn. Leikskólinn Laut er kominn í sumarfrí og leikskólinn Krókur fer í frí eftir helgi og því gott að hafa aðgang að gæsluvellinum fyrir þá sem þess þurfa en rétt að taka fram að gæsluvöllur getur engan veginn komið í stað leikskóla! Að undanförnu hefur gæsluvöllurinn var lagfærður og búið að taka svæðið í gegnum.
Þegar heimasíðuna bar að garði í gær voru krakkarnir á gæsluvellinum að borða nestið sitt og í góðum gír.
Búið er að laga jarðveginn á gæsluvellinum, sérstaklega í kringum leiktækin og jafnframt búið að setja ný leiktæki. Þá er búið að mála og gera umhverfið virkilega snyrtilegt.
Gæsluvöllurinn er fyrir 2 til 6 ára börn, opið er alla virka daga frá kl. 12:45 - 17:15. Meðan barn er að venjast aðstæðum er foreldri skylt að dvelja með barninu og að barnið sé ekki skilið eftir nema í klukkutíma í senn fyrstu skiptin. Gæslugjald er 180 kr. fyrir hverja vistun. Veittur er 50% systkinaafsláttur.
Sjá nánar reglur fyrir gæsluvöllinn á http://www.grindavik.is/v/3842