Hápunktur golfsumarsins hjá Golfklúbbi Grindavíkur er meistaramótið sem hefst á morgun, miðvikudaginn 8. júlí. Lokað verður fyrir skráningu í kvöld kl. 20. Þátttökugjald er kr. 5.000 fyrir þá flokka sem leika fjóra daga en 3.500 fyrir þá sem leika 3 daga. Innifalið í gjaldinu er matur og lokahóf á laugardeginum sem haldið verður í golfskálanum. Veðurspá er góð fyrir þá daga sem meistaramótið stendur yfir.
Leiktími er frjáls miðvikudag og fimmtudag nema í meistaraflokki. Föstudags- og laugardagsrástímar raðast eftir skori fyrri daganna. Kylfingar þurfa að skrá sig í mótið í golfskálanum á þar til gert eyðublað. Þeir kylfingar sem ekki hafa greitt 3/4 hluta ársgjaldsins eru ekki gjaldgengir í meistaramótið.