Grindavíkurbær hefur tekið í notkun rafræn skil á nokkrum umsóknum/eyðublöðum sem hægt er að nálgast hér á heimasíðunni. Íbúar Grindavíkur og fyrirtæki geta fyllt út þessar umsóknir og sent þær rafrænt til bæjarins og sparar það bæði tíma og fyrirhöfn. Grindavík er fyrsta sveitarfélagið á landinu sem nýtir sér skjalaskil hjá www.island.is.
Á www.grindavik.is/umsoknir eru þau umsóknarblöð sem hægt er að skila rafrænt merkt með eftirfarandi hætti:
Á www.grindavik.is/umsoknir er einnig að finna leiðbeiningar hvernig þetta er fyllt út.
Þetta er einfalt ferli og lykillinn er veflykill ríkisskattstjóra. Leiðbeiningarnar má einnig finna hér:
1. Notandi sækir eyðublað á PDF formi og vistar á tölvunni hjá sér. Eyðublaðið er opið fyrir innslátt í reiti sem hann fyllir út og vistar skjalið aftur.
2. Notandi fer á https://www.island.is/audkenning?id=skjalaskil og auðkennir sig með annaðhvort rafrænum skilríkjum eða veflykkli ríkisskattstjóra.
3. Viðskiptavinur hleður upp eyðublaðinu ásamt fylgiskjölum ef það á við og gefur upp netfang.
4. Eftir að hafa hlaðið upp skjölum og gefið upp netfang þá er smellt á "Senda skjöl" og birtist eftirfarandi gluggi:
5. Eyðublaðið er sent á bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar og bíður afgreiðslu þar.