Bikarævintýri Grindavíkur í ár er lokið eftir tap gegn Fram 1-0 á Laugardalsvelli í gærkvöldi í 16 liða úrslitum. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Hjálmar Þórarinsson skoraði sigurmarkið. Grindavík var sterkari aðilinn í leiknum en tókst ekki að nýta sér ágæt marktækifæri.
,,Þetta var jafn leikur og ekki mikið af færum í dag og við spiluðum aðeins betur en þeir börðust alveg eins og við, annars er ég bara ánægður með strákana. Við spilum góðan fótbolta og auðvitað erum við á uppleið. Ég get ekki sagt annað en að ég sé ánægður með þá en svona er fótboltinn," sagði Luka Kostic í viðtali við Fótbolti.net eftir leikinn.
Næsti leikur Grindavíkur er gegn Breiðablik í Pepsi-deildinni og Luka er vongóður fyrir þá viðureign, en leikurinn fer fram 13. júlí næstkomandi.
,,Ég er bara jákvæður fyrir þann leik, strákarnir eru búnir að sýna framfarir viku eftir viku og við erum á réttri leið. Við getum bætt okkur, það vantar nokkra leikmenn í hópinn, þá verður góð viðbót að fá Óla Stefán og við verðum bara betri og betri með hverjum leik," sagði hann að lokum.
Þess má geta að Óli Stefán mætir á sína fyrstu æfingu með Grindavík í dag.