Fallegur bćr

  • Fréttir
  • 3. júlí 2009

Stórt átak hefur verið gert í fegrun bæjarins í sumar en þar hefur garðyrkjufræðingur bæjarins unnið frábært starf sem og Vinnuskóli Grindavíkur. Nýja hringtorgið við innkeyrsluna í bæinn þar sem listaverkið Orka nýtur sín vel, skartar sínu fegursta með sumarblóm allan hringinn en þetta er sannkölluð bæjarprýði.

Þá hefur verið unnið að því að hreinsa, fegra og gróðursetja víðar í bænum. Sem dæmi var tyrft í kringum sparkvöllinn við grunnskólann í vikunni sem margir hafa beðið eftir. Á fleiri stöðum í bænum má sjá þess merki að Vinnuskólinn hefur tekið vel til hendinni. Grindavík er sannarlega fallegur bær.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir