Grindvíkingar vikunnar er þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu, Luka Lúkas Kostic. Hann þjálfaði Grindavík 1994 og kom því upp í úrvalsdeild í fyrsta skipti og jafnframt í bikarúrslitaleik þetta sama ár. Hann tók við liðinu á ný í lok maí. Hann svaraði nokkrum spurningum sem Grindvíkingur vikunnar.
Nafn? Luka Lúkas Kostic.
Fjölskylduhagir? Bý á Sogaveginum í Reykjavík með grindvískri sambýliskonu Maríu Jónu Samúelsdóttur og 2 köttum, 3 börn (Tamara, Igor, Alexander), 3 barnabörn (Bojan, Pedja, Mia).
Starf? Knattspyrnuþjálfari.
Uppáhalds-
...maturinn? Hangikjöt með öllu tilheyrandi og maturinn hjá tengdó.
...drykkurinn? Vatn og Egils Kristall
...staðurinn? Við Bled vatn í Slóvaníu og nágrenni Mývatns.
...leikarinn? Denzil Washington
...bókin? Gricka Vjestica, júgoslavneskar bækur sem fjalla um tíma jesúíta í Júgoslavíu.
...íþróttamaðurinn? Tiger Woods
...liðið? UMFG að sjálfsögðu og Liverpool
Ef þú værir einn á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér? Golfsett, þyrfti ekki nema viku á eyðieyju til að ná Ingvari Guðjóns í forgjöf :), pott mig hefur alltaf langað til að verða meistarakokkur svo ég verði enn duglegri að elda fyrir elskuna mína þegar heim er komið, i-pod, hatt svo ég brenni ekki á skallanum :)
Hvað er best við Grindavík? Frábært knattspyrnusvæði, skemmtilegt útivistarsvæði og gönguleiðir allt um kring.
Hvernig lýst þér á Grindavíkurliðið? Rosalega vel, margir ungir og efnilegir leikmenn sem hafa alla burði til að ná langt með stuðningi okkar frábæru reynslubolta.
Tekst Grindavík að halda sæti sínu í deildinni? Í mínum huga aldrei spurning, erum á uppleið og ég finn gríðarlega mikinn mun á okkur á milli vikna.
Næsti leikur er í bikarnum gegn Fram á sunnudaginn. Væri ekki gaman að komast langt í bikarnum? Ein skemmtilegasta stund sumarsins er þegar komið er að bikarúrslitaleik, Grindvíkingar þekkja reynsluna af því. Ég skora því á stuðningsmenn til að koma og hjálpa okkur á sunnudaginn. Stuðningur stuðningsmanna skiptir ótrúlega miklu máli.
Eitthvað að lokum? Grindavík sem bær hefur breyst mikið á stuttum tíma, hann hefur stækkað gríðarlega, knattspyrnusvæðið eitt það besta á landinu og frábært að finna samheldnina og kraftinn í öllum. Ótrúlega margir sem vinna óeigingjarnt og frábært sjálboðaliðastarf starf fyrir knattspyrnuna. Svo að sjálfsögðu bara ÁFRAM GRINDAVÍK !!!
Á myndinni eru þjálfarar Grindavíkurliðsins, Luka Lúkas Kostic og Milan Stefán Jankovic aðstoðarþjálfari.