Óli Stefán heim í heiđardalinn

  • Fréttir
  • 26. júní 2009

Leikjahæsti leikmaður Grindavíkur í efstu deild frá upphafi, Óli Stefán Flóventsson, hefur ákveðið að snúa á heimaslóðir og gengur til liðs við Grindavík þegar félagaskiptaglugginn opnast 15. júlí nk. Óli Stefán hefur leikið með norska 2. deildarliðinu Vard Haugasund í sumar þar sem hann hefur verið fastamaður í liðinu sem er í 3. sæti í sínum riðli.

Óli Stefán hefur leikið 183 leiki fyrir Grindavík í efstu deild og skorað 32 mörk en alls hefur hann leikið  202 leiki í efstu deild.

Þar sem Marko Valdimar Stefánsson meiddist illa í vinnuslysi í vikunni og Bogi Rafn Einarsson heldur til náms Bandaríkjunum í ágúst var ljóst að Grindavík þurfti á liðsstyrk að halda. Knattspyrnudeild Grindavíkur fagnar því að fyrrverandi fyrirliði liðsins, Óli Stefán, sé kominn heim í heiðardalinn og væntir mikils af honum að því er segir í tilkynningu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!