Sögu- og minjaskiltin í Grindavík hafa verið lagfærð að undanförnu. Skiltin eru orðin sex talsins; í Þórkötlustaðahverfi, á Þórkötlustaðanesi, við Hóp, í Járngerðarstaðahverfi, á Gerðarvöllum og í Staðarhverfi. Fyrirhugað er að setja upp sjöunda skiltið við Hraun í september næstkomandi.
Fyrsta sögu- og minjaskiltið var sett upp í Járngerðarstaðahverfi fyrir þremur árum. Kortið á því, og næstu skiltum þar á eftir, var prentað á hlífðarlausan pappír. Þegar raki komst að pappírnum vildi hann smám saman bæði bólgna og upplitast. Núverandi kort eru varin plastfilmu svo þau ættu að verja sig betur og endast þar af leiðandi lengur. Nýju kortin eru auk þess skýrari en þau gömlu að því er fram kemur á ferlir.is.