Stúlkurnar í mfl. skruppu til Njarđvíkur á miđvikudagskvöld og krćktu sér í 2 stig í viđbót á kostnađ UMFN. UMFG stúlkurnar eru nú komnar međ 14 stig ţegar 3 leikir eru eftir og hafa 2ja stiga forskot á UMFN í keppninni um sćti í úrslitakeppninni.
UMFG voru heppnar ađ ná fram sigri á síđustu mínútunum ţví UMFN stúlkurnar leiddu leikinn alveg fram í byrjun 4. leikhluta. Ke-Ke var mjög sein í gang og munađi mikiđ um ţađ ţar sem sóknarleikur liđsins undanfariđ hefur snúist ađ miklu í kringum hana. Hún skorađi ekki nema 6 stig í fyrri hálfleik. En ţrátt fyrir erfiđa byrjun ţar sem UMFN náđi mest 11 stiga forskoti, 14-3, ţá börđust UMFG stúlkurnar í vörninni og unnu sig smátt og smátt inn í leikinn aftur og tókst ađ minnka muninn í 3 stig fyrir lok 3ja leikhluta, 42-39.
Fjórđa leikhlutann áttu UMFG stúlkurnar svo algjörlega. Ţćr skoruđu 6 stig áđur en UMFN svarađi fyrir sig og leyfđu UMFN svo ekki ađ skora nema 6 stig í leikhlutanum og kláruđu leikinn međ ţví ađ skora síđustu 12 stigin í leiknum og unnu leihlutann 20-6 og leikinn 59-48.
Fyrri hálfleikurinn var ekki góđur hjá UMFG, en í seinni hálfleik komu ţćr ákveđnari til leiks. Vörnin var góđ ţótt sóknarleikurinn hafi ekki veriđ beittur og sérstaklega fráköstuđu stúlkurnar vel. Ke-Ke tók 16 fráköst, en fékk góđa hjálp frá Sólveigu (7 frk og 15 stig), Ernu (8 varnarfrk!) og Jovönu, sem tók 9 fráköst, ţar af 2 mjög mikilvćg sóknarfráköst í 4đa leikhlutanum. Petrúnella var mjög beitt í sóknarleiknum skorađi 9 af 13 stigum sínum í fyrri hálfleiknum en matađi svo stöllur sínar í seinni hálfleiknum.