Mikið stendur til á morgun kl. 10:00 í suðurhlíðum Þorbjörns þegar Skógræktarfélag Grindavíkur ásamt börnum og starfsfólki á leikskólanum Laut gróðursetja tré. Séra Elínborg Gísladóttir ávarpar samkomuna og þá verður lagið tekið og að lokum verður súpa að hætti Geira kokks. Skógræktarfélag Grindavíkur er nú í áhugaverðu samstarfi við pólska félagið Klub Gaja en það hófst í fyrra.
Þetta eru náttúrverndar- og menningarleg samtök með aðsetur í Wilkowice í Póllandi, stofnsett 1988 og tekur þátt í ýmsum verkefnum og eru marg verðlaunuð fyrir framlag sitt. Skógræktarfélag Grindavíkur og Klub Gaja taka nú þátt í 7.000.000.000 trjáa verkefni Sameinuðuþjóðanna " Plöntum trjám fyrir friði /Plöntum fyrir plánetuna".
Með þessu verkefni gefst okkur tækifæri til að skila aftur til jarðarinnar því sem aldir, ís og óárann hefur eytt úr umhverfinu og einnig að tengja saman unga og aldna öllum til yndisauka, um leið og skapaður er sælureitur fyrir alla íbúa bæjarins.
Nánar er hægt að lesa um Klub Gaja á http://www.klubgaja.pl/en/about_us/.
Bæjarbúar eru hvattir til þess að mæta í hlíðar Þorbjörns á morgun til að aðstoða við gróðursetninguna.