Ţađ er alkunnugt ađ ţegar Tyrkjar rćntu hér á landi 1627 gjörđu ţeir landgöngu í Grindavík. Segja menn ţeir hafi komiđ upp á Járngerđarstöđum og söfnuđust menn saman og gengu móti ţeim og varđ bardagi í fiskigörđunum fyrir ofan varirnar. JÓN ÁRNASON IV 161
Ţá bjó karl gamall á Ísólfsskála. Hann átti stálpađan son; rauđa meri átti hann líka. Karlsson heyrđi talađ um ađ Tyrkjar vćru í Grindavík. Hann bađ föđur sinn lofa sér ađ fara ţangađ til ađ sjá ţá. Karl var tregur til ţess, en sonurinn sókti fast eftir. Karl lét ţađ ţá eftir og setti hann á bak Rauđku og bađ hann ríđa hćgt ţangađ til hann sći Tyrkja og snúa ţá aftur og flýta sér sem mest.
Hann fór nú og segir ekki af honum fyrr en hann sá Tyrkja ţar sem ţeir börđust viđ landsmenn. Ţá stukku tveir strax og ćtluđu ađ taka hann. Hann varđ dauđhrćddur, reiđ undan og barđi á báđa bóga, en Rauđka var ekki viljugri en svo ađ Tyrkjar voru alltaf í nánd viđ hana. Ţó dróst svo austur á Hraunssand ađ ţeir náđu henni ekki. Ofan til á miđjum sandi náđu báđir undir eins í tagliđ á henni, en hún sló aftur undan sér og setti sinn hóf fyrir brjóst hvorum Tyrkja svo ţeir féllu niđur dauđir, en Rauđka hljóp nú svo hart ađ karlssyni ţótti nóg um og kom hann heill heim á Skála.
Leiđi Tyrkjanna sést enn á Hraunssandi, hlađiđ úr grjóti og lítiđ grasi vaxiđ ofan, nćstum kringlótt, nálega einn fađm á hvurn veg. Slétt er fram á ţađ ţví sandinum hallar, en undan brekkunni er ţađ nálega tveggja feta hátt. Sumir kalla ţađ Kapellu. Í bardaganum veitti landsmönnum miđur. Sćrđu Tyrkjar suma, en tóku suma; ţó féllu margir af Tyrkjum.
Helgi hét mađur; hann barđist međ kvíslarfćti og drap fimmtán Tyrkja, en var síđan tekinn. Hann var keyptur út löngu seinna og er sú sögn eftir honum höfđ, ađ hann hafi drepiđ tvo eigendur sína, hvorn eftir annan, ţá hann hlóđ múrvegg, en ţeir fundu ađ verkinu, og hafi hann hlađiđ ţeim í vegginn svo ţeir fundust ekki og engan grunađi ađ Helgi hefđi ollađ hvarfi ţeirra.
Engin dys sjást ţar sem bardaginn var eđa ţar nálćgt. En svo segja Grindvíkingar og fleiri ađ ţar vaxi ţyrnir síđan ţar kom saman kristiđ blóđ og heiđiđ, en ţađ er raunar ţistill, en ekki ţyrnir.