Fræðslu- og uppeldisnefnd hefur samræmt skipulags- og starfsdaga í skólum fyrir næsta skólaár. Skóladagatal grunnskólans liggur frammi en starfsdagar skv. dagatalinu eru 19. og 20. október 2009, 18. og 19. febrúar 2010, og 14. maí 2010. Vetrarfrí verður hinn 22. febrúar 2010. Dagatalið er samþykkt með venjulegum fyrirvara.
Skóladagatal tónlistarskólans liggur frammi en starfsdagar skv. dagatalinu eru 25. september 2009, 20. október 2009, 18. og 19. febrúar 2010 og 23. apríl 2010. Vetrarfrí verður hinn 22. febrúar 2010. Dagatalið er samþykkt.
Dagatal leikskólans Lautar liggur frammi en starfsdagar skv. dagatalinu eru 19. október 2009, 19. mars 2010 og 14. maí 2010. Dagatalið er samþykkt.
Dagatal leikskólans Króks liggur frammi en starfsdagar skv. dagatalinu eru 19. október 2009, 19. mars 2010 og 14. maí 2010.