null
Ár 2009, mánudaginn 8. júní var haldinn 151. fundur íþrótta- og æskulýðsnefndar Grindavíkur. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofu Grindavíkur og hófst kl. 17:45.
Mættir voru: Sigurður Enoksson formaður, Pálmar Guðmundsson, Haukur Einarsson, Magnús Már Jakobsson og Ólafur Sigurðsson. Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Sigurður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Þetta gerðist:
Dagskrá:
1. 0902008 - 17. júní 2009
Lögð fram dagskrá að 17. júní hátíðarhöldunum. Körfuknattsleiksdeild UMFG hefur umsjón með skemmtidagskrá hátíðarhaldanna að þessu sinni og leggur til að hátíðardagskráin verði við Grunnskólann. Nefndin samþykkir hátíðardagskránna fyrir sitt leyti.
2. 0904012 - Afrekssjóður Grindavíkur og UMFG
Sex umsóknir hafa borist í sjóðinn frá landsliðsfólki í körfuknattleik.
Jens Valgeir Óskarsson v/ landsliðsferðar U-15 ára til Danmerkur.
Páll Axel Vilbergsson v/ ferðar A-landsliðs á Smáþjóðaleikana á Kýpur.
Þorleifur Ólafsson v/ ferðar A-landsliðs á Smáþjóðaleikana á Kýpur.
Íris Sverrisdóttir v/ ferðar A-landsliðs á Smáþjóðaleikana á Kýpur.
Petrúnella Skúladóttir v/ ferðar A-landsliðs á Smáþjóðaleikana á Kýpur.
Ingibjörg Jakobsdóttir v/ ferðar A-landsliðs á Smáþjóðaleikana á Kýpur.
Út frá vinnureglum sjóðsins samþykkir nefndin að veita A-landsliðsfólki hverju og einu styrk að upphæð 50.000 kr. og Jens Valgeir styrk að upphæð 30.000 kr.
3. 0904008 - Sjóarinn síkáti 2009
Í tengslum við bæjarhátíðina Sjóarinn síkáti vill íþrótta- og æskulýðsnefnd koma eftirfarandi á framfæri:
Íþrótta- og æskulýðsnefnd fagnar framkvæmd á Sjóaranum síkáta í ár og finnst hafa tekist vel til. Þó vill nefndin koma því á framfæri að löggæsla í tengslum við hátíðina verði efld og sérstaklega í tengslum við dansleikjahald þar sem 18 ára aldurstakmark er og að það sé virt. Þó nokkuð bar á ungingum yngri en 18 ára á dansleiknum í íþróttahúsinu og þarf að taka harðar á eftirliti með því. Nefndin fagnar því framtaki sem forvarnarteymi Grindavikur sýndi með því að hafa eftirlit með unglingadrykkju en harmar að lögregluyfirvöld skuli ekki hafa fylgt því eftir með nægjanlegum mannskap og eftirliti. Einnig vill nefndin beina því til bæjaryfirvalda að Rollutúnið verði nýtt sem tjaldsvæði á þessari hátíð svo hægt sé að taka á móti öllum þessum fjölda manns sem mætti á svæðið því vonandi á þessi hátið eftir að eflast á næstu árum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:30
Sigurður Enoksson
Haukur Einarsson
Pálmar Guðmundsson
Magnús Már Jakobsson
Ólafur R. Sigurðsson