Skólaslit Grunnskóla Grindavíkur fóru fram í síðustu viku við hátíðlega athöfn. Rétt tæplega 500 nemendur voru í skólanum á síðasta skólaári og tókst skólahald mjög vel. Skólaslitin voru þrískipt, þ.e. hjá yngsta stigi, mið stigi og unglinga stigi.
Í máli Páls Leó Jónssonar skólastjóra kom fram að starfsemi skólans hefði gengið vel og árangur samræmdra prófa undirstrikaði það. Þá var 10. bekkur útskrifaður með pompi og pragt og að loknum skólaslitunum buðu foreldrar þeirra útskriftarnemunum í mat.
Veitt voru ýmis verðlaun fyrir námsárangur.
5.-7.bekkur
3.besti námsárangur á miðstigi: Margrét Rut Reynisdóttir 6.HÞ og Valgerður Þorsteinsdóttir 6.HÞ
2. besti námsárangur á miðstigi: Katla Marín Þormarsdóttir 5.R
Besti námsárangur á miðstigi: Magnús Már Ellertsson 7.Þ
Viðurkenning frá Lionsklúbbi Grindavíkur fyrir góðan árangur í tæknimennt: Sigurður Helgi Hallfreðsson 7.S
Viðurkenning frá Kvenfélagi Grindavíkur fyrir góðan árangur í textílmennt: Erla Þorsteinsdóttir 7.Þ
Viðurkenning fyrir jákvæðni og góða hegðun: Hinrik Guðbjartsson 7.Þ
Viðurkenning fyrir af hafa hlotið einkunnina 10 í stærðfræði á samræmdu prófi: Frank Bergmann Brynjarsson, Lára Lind Jakobsdóttir og Magnús Már Ellertsson
Víðavangshlaup skólans 2009: 6.S
8.-10.bekkur
3.besti námsárangur á unglingastigi: Gunnar Þorsteinsson 9.G
2. besti námsárangur á unglingastigi: Guðjón Sveinsson 8.V
Besti námsárangur á unglingastigi: Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 9.G
Besti árangur á grunnskólaprófi: Sara Hrund Helgadóttir 10.P
Penistonebikarinn fyrir góðan árangur í ensku á grunnskólaprófi: Eyþór Ingi Guðmundsson 10.P
Orðabók frá danska sendiráðinu góðan árangur í dönsku á grunnskólaprófi: Gunnar Marel Ólafsson 10.K
Sparisjóðurinn veitir verðlaun fyrir besta árangur í íslensku á grunnskólaprófi: Þórhildur Edda Eiríksdóttir 10.P
Landsbankinn veitir verðlaun fyrir besta árangur í stærðfræði á grunnskólaprófi: Steinar Sindri Agnarsson 10.K
UMFG veitir bikar fyrir góðan árangur í íþróttum pilta: Benóný Þórhallsson 10.K, og stúlkna: Sara Hrund Helgadóttir 10.P
Aðalbraut veitir viðurkenningu fyrir jákvæðni og einstakan árangur í valgreinum: Eva Rún Guðmundsdóttir 10.K og fyrir prúðmennsku, stundvísi og dugnað: Guðmundur Sindri Harðarson 10.P
Viðurkenning fyrir ósérhlífni og dugnað í félagsstarfi: Sara Hrund Helgadóttir 10.P, Róshildur Björnsdóttir 10.P, Sandra Ýr Grétarsdóttir 10.P og Viktor Atli Gunnarsson 9.9.P
Siglingafræði: Vignir Hreinsson 10.P og Brynjar Örn Bjarkason.