Gestasöngvari í Óskalögum sjómanna að þessu sinni er Njarðvíkingurinn Haraldur Helgason. Hann er kokkur, var m.a. með Stapann í mörg ár, rekur nú ásamt félaga sínum veitingastaðinn Réttinn í Reykjanesbæ. Það var fyrir tilstilli Geira kokks (á Vör) að Halli Helga rak á fjörur okkar, segir Rósa Signý Baldursdóttir, einn skipuleggjenda Óskalaganna.
,,Eins og fleiri góðir kokkar er þetta lífsglaður og söngelskur gleðigjafi með náttúrulega og flotta rödd sem smellpassar við dagskrána okkar."
Eins og fram hefur komið verða Óskalög sjómanna í Salthúsinu fimmtudaginn 4. júní. Að þessu sinni verða tvær skemmtanir þetta kvöld, kl. 20 og 22:10. Forsala aðgöngumiða verður á þriðjudaginn frá kl. 19:30 til 20:30. Miðaverð er 1.500 kr.