Í dag kemur út bæklingurinn Gleðilegt sumar í Grindavík 2009. Þar er fjallað um það tómstundastarf sem í boði verður í sumar fyrir grindvísk börn og ungmenni ásamt upplýsingum um Vinnuskólann. Hægt er að nálgast bæklinginn hér.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að kynna sér bæklinginn vel og vonandi geta sem flestir nýtt sér eitthvað af því sem er í boði.
Umsóknareyðublað um námskeið sumarsins má nálgast hér. Umsóknareyðublaðinu skal skila á bæjarskrifstofurnar.
Kristinn J. Reimarsson, frístunda- og menningarfulltrúi er ritstjóri. Hann fylgir bæklingnum úr hlaði með eftirfarandi orðum: ,,Vonandi verður sumarið í Grindavík gleðilegt og vil ég hvetja fjölskyldur til að nýta tímann vel, gera eitthvað nýtt og njóta samverunnar.
Foreldrar ungmenna verða einnig að halda vel utan um unglingana sína, því rannsóknir sýna að margir unglingar byrja að neyta áfengis eða annarra vímuefna þegar ramminn er ekki eins skýr og frelsið er meira en á veturna. Vert er að benda á reglur um útivistartíma. Þær gilda einnig á sumrin og eiga 13 - 16 ára unglingar ekki að vera úti lengur en til kl. 24:00 frá 1. maí til 1. september."