Síðustu skóladagarnir í maí eru nýttir í heimsóknir og útivist. Nemendur í 1. bekkjum grunnskólans fóru í heimsókn í ,,sveitina" í Vík, til systkinanna Línu, Gauja og Siggu, til þess að skoða lömbin.
Krakkarnir fengu höfðinglegar móttökur og reyndist þetta ævintýraferð enda gaman að sjá nýfædd lömbin. Fleiri myndir á heimasíðu skólans, http://skolinn.grindavik.is/myndir/0809/uppakomur/lambaferd1bekkja/index.html