Árlegir hreinsunardagar í Grindavík eru hafnir og lýkur sunnudaginn 24 maí. Tökum höndum saman og fegrum umhverfi okkar og gerum bæinn okkar sem snyrtilegastan fyrir bæjarhátíðina Sjóarann síkáta. Athugið að setja lífrænan úrgang eins og trjágreinar, laufblöð og almennan garðagróður og annað rusl út á lóðamörk þar sem þetta verður svo fjarlægt mánudaginn 25. maí.