Nóg verður um að vera í heimi íþróttanna fyrir alla aldurshópa á Sjóaranum síkáta í ár. Sú nýbreytni verður að sunnudaginn 7. júní kl. 17 verður fótboltamót hverfanna fjögurra í Grindavík. Keppt er á hálfum velli, 10 í liði. Valið er í lið samkvæmt eftirfarandi reglum:
- Enginn meistaraflokksleikmaður má vera með. Liðsstjóri í hverju hverfi velur 16 leikmenn. 2 skulu vera 15-20 ára, fjórir skulu vera 21-30 ára, fjórir 31-40 ára, þrír 41-50 ára og þrír 51+. Að lágmarki skal vera ein kona úr hverjum aldurshóp. Skylda er að spila á strigaskóm (takkaskór bannaðir) og markvörður verður að vera í stígvélum. Leiknar verða 2x15 mínútur.
Appelsínugula hverfið - liðsstjóri Haukur Einarsson, skipstjóri.
Bláa hverfið - liðsstjóri Heimir Örn Hafsteinsson, skipstjóri.
Græna hverfið - liðsstjóri Viktor Jónsson, skipstjóri.
Rauða hverfið - liðsstjóri Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri.
Leiknir verða undanúrslitaleikir (dregið á staðnum) og svo úrslitaleikur á aðalleikvanginum (ef veður leyfir). Liðin þurfa að mæta í búningum í sínum litum.
Dómarar hafa verið tilnefndir þeir Eyjólfur Magnússon og Gunnlaugur Hreinsson.
- Kl. 15 á sunnudeginum verður körfuboltamót á vegum körfuknattleiksdeildar UMFG fyrir 10-16 ára, stelpur og strákar, við Festi. Þrír saman í liði. Skráning fer fram kl. 13-14 í íþróttahúsinu.
- Á sunnudeginum kl. 11 verður knattspyrnumót á æfingasvæði Grindavíkur í 6. flokki drengja. Keppt er í A, B, C og D liðum og er von á 200 þátttakendum, fyrir utan foreldra og forráðamenn. Auk Grindavíkur taka Keflavík, Njarðvík og Haukar þátt í mótinu.