Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti stendur sannarlega undir nafni sem fjölskylduhátíð. Mikið verður um að vera fyrir börnin og ættu þau að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér verður nefnt það helsta:
Risastórt fiskabúr með bleikju frá Íslandsbleikju í Grindavík til sýnis við Saltfisksetrið. Vinsælasta hljómsveit landsins í dag, Ingó og Veðurguðirnir, sjá um fjörið á bryggjuballinu á föstudagskvöldinu. Kynning á hundum og hundaþjálfun í íþróttahúsinu. Hundar frá félaginu Doberman Ísland og fleiri aðilum verða á svæðinu.
Skoppa og Skrítla skemmta á sviðinu í Hafnargötu. Sprell leiktæki verða í Hafnargötunni í boði Sparisjóðs Keflavíkur. Stór björgunar- og slökkviliðssýning við Slökkvistöð Grindavíkur. Til sýnis verða ýmis björgunartæki og slökkvibílar og brugðið verður á leik. Smíðaverkstæði barnanna í Hafnargötu. Allir krakkar velkomnir að spreyta sig við að smíða sverð og skildi. Skemmtisigling fyrir alla fjölskylduna eins og verið hefur. Farið er um borð frá Ísfélagi Grindavíkur við Miðgarð. Fjórhjólaævintýri ehf. með ævintýraferðir og fjórhjólaferðir á hafnarsvæðinu fyrir alla. Sjópulsan Sjóferð á ferð um höfnina. Fyrir alla, konur og karla. Tvenns konar ferðir; Ferð ofurhugans 13 ára og eldri - Ferð með yngri um höfnina.
Gunni og Felix skemmta börnum á öllum aldri á sviðinu í Hafnargötunni. Börnin fá far með bifhjólum frá N1. Tekinn verður stuttur hringur. Lee töframaður skemmtir . Brúðubíllinn skemmtir yngri kynslóðinni á Hafnargötunni. Listflug Björns Thoroddsens yfir Grindavíkurhöfn. Vatnsslagur fyrir ofan slökkvistöðina. Allir krakkar mæta með vatnsbyssur og vatnsblöðrur.
Koddaslagur, kararóður og flekahlaup við höfnina. Körfuboltamót á vegum körfuknattleiksdeildar UMFG fyrir 10-16 ára, stelpur og strákar, við Festi. Þrír saman í liði. Sirkusinn Shoeboxtour skemmtir í Saltfisksetrinu. Shoeboxtour samanstendur af Bandaríkjamanninum Jay Gilligan, Svíanum Erik Åberg og Finnanum Mirja Jauhiainen. Þau sýna listræn sirkusatriði og blanda við það eigin tónlist í bland við aðra og virkja unga sem aldna með sér. Hópurinn hefur farið í sýningarferðir um Bandaríkin, Japan og Evrópu og er á heimsmælikvarða. Sýningin er ætluð öllum aldri o.fl. o.fl.