Fyrirtæki vikunnar er verkfræðistofan Verkmáttur sem Pétur Bragason rekur en hann var áður yfirmaður Tæknideildar Grindavíkurbæjar. Starfsmenn Verkmáttar taka að sér verkefnastjórnun og ráðgjöf við verkefnastjórn og er það megin starfsemi fyrirtækisins. En hvers vegna fór Pétur út í að stofna Verkmátt?
„Það var ekki spurning hvort heldur hvenær ég skyldi stofna mitt eigið fyrirtæki og ég tók þessa ákvörðun vorið 2007 og sagði þá upp í kjölfarið vinnunni sem ég var í hjá Grindavíkurbæ. Verkfræðistofa varð fyrir valinu þar sem að ég hef alltaf haft gaman af byggingarframkvæmdum. Það má segja að það sé í blóðinu að ég yrði alltaf sjálfstæður atvinnurekandi og er alinn upp við þetta. Pabbi minn er sjálfstæður atvinnurekandi, báðir afar mínir og frændur og þeir starfa annað hvort sem byggingarverktakar eða voru í útgerð. Þeir eru mínar fyrirmyndir."
- Þú býrð í Grindavík en hvers vegna að hafa skrifstofuna í Reykjanesbæ?
„Í upphafi var ég með vinnuaðstöðu fyrirtækisins í Grindavík en ég tók þá ákvörðun að færa alfarið aðstöðuna í Reykjanesbæ í upphafi þessa árs, eftir þó nokkra umhugsun. Í Reykjanesbæ gat flutt í frábært skrifstofuhúsnæði við sjóinn sem ég hef lengi haft augastað á. Þetta víkkar einnig út markaðssvæði fyrirtækisins ásamt því að nú er ég einnig staðsettur mitt á milli minna stærstu viðskiptavina sem eru í Grindavík, á Vallarheiði og í Garðinum. Ég lít þó á fyrirtækið mitt sem grindvískt þar sem að ég er eigandi þess og fyrirtækið er með lögheimili í Grindavík."
- Hvaða verkefni vinnið þið að? Hvaða verkefni eruð þið með í Grindavík?
„Við vinnum við allt sem snýr að verkefnisstjórnun byggingarframkvæmda, s.s. tilboðs- og áætlanagerð, reikningsgerð, gerð útboðsgagna ásamt framkvæmdaeftirliti og hönnun húsbygginga. Við bættum svo nýverið við þjónustuna og fengum flinkan grafískan hönnuð og MBA mann til liðs við okkur og hann vinnur nú að markaðsmálum, stefnumótun og fleiri verkefnum í rekstrarráðgjöf fyrir hina ýmsu aðila. Hann var t.d. að vinna fyrir Samtök fjármálafyrirtækja í seinustu viku og aðstoðaði við markaðsetninguna á Íslandskistum. Helsta verkefnið mitt í Grindavík er Hópsskóli en þar er ég Grindinni til halds og trausts svo að verkið gangi upp eins og við Magnús lögðum af stað með í upphafi."
- Hvernig er verkefnastaðan miðað við árferðið í dag?
„Verkefnastaðan okkar er góð og við vinnum alltaf hörðum höndum að því að efla verkefnastöðuna til þess að geta skapað fleiri eftirsóknarverð störf fyrir gott starfsfólk. Grindvíkingar eru velkomnir í heimsókn til okkar og það er alltaf heitt á könnunni og gott vatn í krananum," sagði Pétur Bragason að lokum.