Tónlistarskóla Grindavíkur var slitið í Grindavíkurkirkju síðasta föstudag. Inga Þórðardóttir, skólastjóri, fór yfir starfsemi skólaársins á milli þess sem nemendur skólans léku og sungu. Meðal annars var leikið á fiðlu, píanó, blásturshljóðfæri, rafmagnsgítar og þá tók slagverkssveit skólans James Bond lag sem vakti mikla lukku. Þá tóku söngnemendur skólans lagið.
Nokkrir nemendur útskrifuðust með stigspróf í sínum hljóðfæraleik sem ávallt er stór áfangi. Í máli Ingu kom fram að starfsemi skólans í vetur hefði verið með miklum blóma þökk sé einvala liði kennara. Litlar breytingar verða á kennaraliði skólans næsta vetur en hins vegar verður stór breyting þegar kemur að nemendum því bæjaryfirvöld hafa ákveðið að tónlistarskólinn verði gjaldfrjáls en Grindavík er fyrsta bæjarfélagið á landinu sem stígur þetta skref. Inga fagnaði þessum áfanga því nú gætu nemendur í Grindavík stundað tónlistarnám án tillits til efnahags, líkt og í íþróttum.