Dagskrá bæjarhátíðarinnar Sjóarans síkáta liggur að mestu fyrir og er ljóst að hún verður glæsileg líkt og undanfarin ár og verða nokkrar nýjungar að þessu sinni. Dagskráin verður kynnt í heild sinni þegar nær dregur en niðurtalning hefst eftir helgina hér á heimasíðunni en þá verða kynnt einhver atriði á hátíðinni á hverjum degi fram að sjómannadagshelginni, 5.-7. júní. Aðilar í verslun og þjónustu í Grindavík eru vinsamlegast beðnir að athuga eftirfarandi:
- Að vanda verður dagskrá Sjóarans síkáta dreift í öll hús. Aðilar í verslun og þjónustu sem vilja koma því á framfæri í dagskránni hvað þeir bjóða sérstaklega upp á þessa helgi eru beðnir um að senda upplýsingarnar á heimasidan@grindavik.is, í síðasta lagi mánudaginn 18. maí kl. 16:00.
Eftirtalin fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa þegar komið upplýsingum sínum í dagskrána:
Aðal-braut, Hérastubbur bakari, Bókabúðin, Palóma, Lyfja, Bára/Pizza Islandia og snyrtistofan Fagra.