Björn Haraldsson bæjarfulltrúi var fulltrúi Grindavíkur á sýningunni Ferðalög og frístundir í Laugardalshöll um síðustu helgi. Eins og sést á myndinni klæddist Björn víkingabúningi að fornum sið en Ferðamálasamtök Suðurnesja voru með bás á sýningunni þar sem Víkingaheimar í Reykjanesbæ voru kynntir.
,,Ég er í stjórn Ferðamálasamtaka Suðurnesja og bauðst til þess að vinna á sýningunni og klæðast einhverjum búningi. Gunnar Marel Eggertsson, sem smíðaði víkingaskipið Íslending, tók mig á orðinu og lagði til þennan skemmtilega búning," sagði Björn við heimasíðuna.
Hann segist hafa verið viðloðandi ferðamannaiðnaðinn undanfarna áratugi. Breytingarnar frá því hann flutti til Grindavíkur 1970 séu ótrúlegar en þetta sé allt að þróast í rétta átt. Björn sagði að sýningin í Laugardalshöll hefði tekist vel.
Á neðri myndinni eru fulltrúar Ferðamálasamtaka Suðurnesja í básnum á sýningunni. F.v. Bryndís Þorsteinsdóttir, Björn Haraldsson, Gunnar Marel Eggertsson og Kristján Pálsson.