AF STAĐ á Reykjanesiđ ? Stórhöfđastígur á laugardaginn

  • Fréttir
  • 14. maí 2009

Stórhöfðastígur er hluti af  þjóðleið milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur. Gengið verður frá Krýsuvíkurvegi um Brunntorfur framhjá Fjallinu eina og Hrútagjá upp á Undirhlíðarveg. Svæðið býr yfir mikilli náttúru- og jarðfræðisögu. Áætlað er að gangan taki um  3 - 4 klst. með fræðslustoppum. Þetta er frekar auðveld leið. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Akstur til baka. Þátttökugjald er kr. 1.500. Frítt fyrir börn.


Gangan er önnur ferð af tólf menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða með leiðsögn sumarið ´09. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 6 - 12 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá veglega vinninga. Dregið verður í síðustu göngu. Þátttakendur eru beðnir um að muna eftir að taka þátttökuseðla með í ferðir. Allir velkomnir.

AF STAÐ á Reykjanesið:  2. ferð, laugardaginn 16. maí, kl. 11, Stórhöfðastígur,  Krýsuvíkurvegur/Bláfjallaleið að Undirhlíðavegi/Djúpavatnsleið -  8 km
Upphafsstaður: Akið að mótum Krýsuvíkur- og Bláfjallaleiðar að stóra Bláfjallaskiltinu.

Nánari upplýsingar um ferðir:    
www.sjfmenningarmidlun.is
sjf@internet.is /gsm 691 8828


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir