Fyrsti heimaleikur sumarsins hjá Grindavík í úrvalsdeild karla er í kvöld en þá kemur stórlið KR í heimsókn og hefst leikurinn kl. 19:15. Grindavík vann aðeins einn heimaleik í fyrra og það var gegn KR. ,,Að sjálfsögðu er stefnan að gera miklu betur á heimavelli en í fyrra. Þetta hefur verið sterkur heimavöllur undanfarin ár en ég veit ekki hvað klikkaði í fyrra,"' sagði Orri Freyr Hjaltalín fyrirliði Grindvíkinga við Fótbolta.net.
Grindvíkingar töpuðu 3-1 fyrir Stjörnunni í fyrstu umferð og eru ákveðnir í að ná sigri í kvöld.
,,Það er alltaf gott að fá leik strax á eftir svona frammistöðu og við erum alveg staðráðnir í að vinna þennan leik á í dag. Okkur hefur gengið ágætlega með KR hérna heima og það verður vonandi engin breyting á því."
KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í körfubolta á dögunum eftir magnað úrslitaeinvígi við Grindavík. Orri Freyr telur að áhorfendur fjölmenni á völlinn í kvöld og býst við góðum stuðningi þar sem fólk vill hefna fyrir tapið í körfunni.
,,Það eru margir svolítið svekktir með hvernig körfuboltinn fór og ég held að það mæti mjög margir til að styðja okkur. Við vorum allir grautfúlir með körfuna og við ætlum að kvitta fyrir það í kvöld. Við erum með fínt lið og þó að við höfum misst tvo í meiðsli í síðasta leik þá koma ferskir og sterkir menn inn af bekknum og við veikjumst ekkert við það."
GRV tapaði fyrir Fylki
Kvennalið GRV steinlá fyrir Fylki í gærkvöldi 4-0 á Fylkisvelli í úrvalsdeildinni. GRV sá aldrei til sólar í þessum leik. Ágústa Jóna Heiðdal fyrirliði GRV og einn af reynsluboltum liðsins var ekki sátt við sitt lið .
„Við vorum bara ekki nógu þéttar, náðum illa að spila boltanum, í fyrri hálfleik aðallega, en svo bættum við þetta og þá gekk mun betur," sagði Ágústa þegar hún var spurð útí 4-0 tap GRV.
Mikill vindur var á vellinum eins og hefur verið um allt landið undanfarna daga. En var vindurinn að trufla leik liðsins?
„Bæði lið spila við sömu aðstæður svo við getum ekki kennt veðrinu um en jú auðvitað á veðrið einhvern hlut í þessu en þó ekki mikinn í 4-0 tapi," sagði Ágústa.
„Liðið er búið að setja sér nokkur markmið sem við ætlum að halda útaf fyrir okkur og við vinnum með það með hverjum leik," sagði hún hún að lokum þegar hún var innt eftir hver stefnan væri hjá GRV þetta sumarið.