Tæknideild Grindavíkurbæjar bauð bæjarfulltrúum, skipulags- og bygginganefnd, nefnd um endurskoðun aðalskipulags Grindavíkurbæjar, umhverfisnefnd, umhverfisstofnun, heilbrigðiseftirliti og fulltrúum HS Orku hf. í skoðunarferð um náttúruperluna Eldvörp sem er í landi Grindavíkur. Leiðsögumenn í ferðinni voru Ómar Smári Ármannsson hjá Ferli og Guðmundur Ómar Friðleifsson yfirjarðfræðingur hjá HS orku.
Tilgangur ferðarinnar var að kynna þessum aðilum Eldvörp og næsta nágrenni vegna auðlindastefnu Grindavíkurbæjar og vinnu við aðalskipulag bæjarins.
Eldvörp eru afar áhugaverður staður. Náttúrufar á Reykjanesskaga hefur um langt skeið dregið að sér athygli náttúrufræðinga og hefur hún aðallega beinst að þeim þáttum sem mest setja svip sinn á landslagið eins og eldvörp, gígar, hraun, sprungur, jarðhiti og misgengi. Eldstöðvarkerfi á Reykjanesskaga eru fjögur talsins og eru þekkt tvö gosskeið á síðustu tvö þúsund árum þar sem öll eldstöðvarkerfin urðu virk. Ómar Smári fór með hópinn um Eldvörp og þar var ýmislegt forvitnilegt að sjá, ekki síst mannvistarleifar og hella.
Að lokum var ferðinni heitið í Svartsengi, í höfuðstöðvar HS Orku hf., þar sem gengið var í gegnum orkuverin. Sjötta og síðasta orkuverið var tekið í notkun 2008 og er það eina sinnar tegundar í heiminum en fyrsta holan sem boruð var í Svartsengi 1971 var að frumkvæði Grindavíkurbæjar.