Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta var haldin miðvikudaginn 6. maí sl. í grunnskólanum. Vel mætt var á hátíðina og var mjög ánægjulegt að sjá marga foreldra á staðnum. Þjálfarar fóru yfir árangur vetrarins og verðlaunuðu leikmenn sem höfðu skarað framúr. Fjölmargir iðkendur unnu til verðlauna og greinilegt að mikil gróska er í körfuboltanum í Grindavík.
Ein verðlaun náðu yfir alla flokkana en það var valið á Grindvíking ársins. Þau verðlaun komu í hlut hinnar efnilegu Söndru Ýr Grétarsdóttur. Verðlaunahafa í einstökum flokkum má sjá á umfg.is