Árleg spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara liða í efstu deild karla og kvenna var birt í gær. Þar var karlaliði Grindavíkur spáð 7. sæti í 12 liða deild, sem er sama sæti og liðið hafnaði í á síðustu leiktíð. Kvennalið GRV (Grindavík, Reynir, Víðir) var spáð 8. sæti í 10 liða deild og sleppur því við fall en GRV er nýliði í deildinni.
,,Mér líst nokkuð vel á þetta, þetta er kannski í efri kantinum miðað við hvað ég bjóst við en það er bara gaman að menn hafi trú á okkur," sagði Orri Freyr Hjaltalín fyrirliði Grindavíkur á fotbolti.net
,,Við erum með svipað lið og í fyrra, höfum misst sterka og fengið nokkra sterka í staðinn. Hinsvegar hafa hin liðin flest öll verið að veikjast töluvert á pappírunum. Það eru að koma leikmenn inn sem eru ekkert síðri í knattspyrnu en fáir hafa heyrt um."
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari GRV, er nokkuð bjartsýnn fyrir sumarið.
„Undirbúningur hefur gengið svona upp og ofan. Hópurinn hefur verið mjög lítill á undirbúningstímabilinu sem hefur oft reynt á þolrif leikmanna og þjálfara. Við höfum þó reynt að láta það ekki á okkur fá og gert það besta úr aðstæðum. Stelpurnar hafa heilt yfir staðið sig mjög vel og lagt mikinn metnað í að koma sér í gott form fyrir sumarið."
GRV hefur fengið góðan liðsstyrk að undanförnu, tvo írska landsliðsmenn, einn leikmann frá Bandaríkjunum og svo markvörð að láni frá Val.
Á myndinni eru Gunnar þjálfari GRV, Ágústa fyrirliði GRV, Orri Freyr fyrirliði Grindavíkur og Milan Stefán Jankovic, þjálfari liðsins.