Hún Vala á Skála á afmæli dag. Valgerður Guðmundsdóttir er ein 11 systkina frá Ísólfsskála. Hún er fædd á Hrauni 6. maí 1912 og fluttist að Ísólfsskála með foreldrum sínum 1916 en hefur búið á Lundi frá árinu 1967. Í tilefni aldursins orti Vala þessa vísu:
Nú ég gömul orðin er,
augljóslega það sést á mér.
Bakið bognar, brjóstin falla,
beyglast fótur, kreppist hönd.
Hugsjónin hún hefur dofnað,
heyrnin líka og sjónin dvín.
En ég bið minn Alvaldsföður
alla tíma að gæta mín.