Annað tölublað ársins af blaðinu Járngerði, sem Grindavíkurbær gefur út, verður dreift í öll hús á morgun, fimmtudag. Að venju er að finna í blaðinu ýmsar fréttir af bæjarmálum en blaðið verður aðallega helgað nýrri Auðlindastefnu Grindavíkurbæjar að þessu sinni.
Einnig verður fjallað um vígslu Hópsins, framkvæmdir á vegum bæjarins í ár, Fisktækniskóla Íslands, árshátíð grunnskólans, slökkviliðið, forvarnarstarf, nýtt tjaldsvæði og ýmislegt fleira. Bæjarstjóri fylgir Járngerði úr hlaði. Járngerður verður einnig aðgengileg hér á heimasíðunni í fyrramálið. Umsjónarmaður Járngerðar er Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga og þróunarfulltrúi. Járngerður er 16 blaðsíður að þessu sinni, prentuð í Stapaprent.
Forsíðu Járngerðis prýðir mynd Ómars Smára Ármannssonar af Eldvörpum.