Grunnskólinn í Grindavík leitar leiar að áhugasömum kennurum til eftirfarandi starfa næsta skólaár 2009 -2010:
• Umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi
• Myndmenntakennara í hlutastarf
• Heimilisfræðikennara í hlutastarf
• Textílkennara í fullt starf
• Tónmenntakennara í hlutastarf
• Danskennara í hlutastarf
• Sérkennara í fullt starf
Grindavík er blómlegt sveitarfélag með um 2850 íbúa í aðeins 45 km. fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Nemendur eru um 500 í 1.-10. bekk. Í skólanum er unnið framsækið starf af áhugasömu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt uppbyggingarstefnunni - uppeldi til ábyrgðar. Frekari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu hans http://skolinn.grindavik.is og á heimasíðu bæjarins www.grindavik.is
Upplýsingar veita skólastjóri Páll Leó Jónsson og aðstoðarskólastjóri Stefanía Ólafsdóttir í síma 420-1150.
Netföng pallleo@grindavik.is - stella@grindavik.is
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Skólastjóri