Nóg hefur verið að gera hjá Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur að undanförnu enda margir að skipta vetrardekkjunum út og setja sumardekkin undir. Frá og með 1. maí nk. geta þeir bíleigendur sem eru enn með nagladekk undir bílnum átt von á því að vera sektaðir og því borgar sig að skipta strax. Auk þess fara sumardekkin mun betur með malbikið og bíllinn er hagstæðari í keyrslu!
Á myndinni er Kristján Grétar Pétursson á Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur á fullum krafti við að umfelga.