Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti verður haldin sjómannadagshelgina 5. - 7. júní. Nokkrar breytingar verða á hátíðinni í ár en Grindavíkurbær sér nú um skipulagningu hennar og var Þórarinn Sigvaldason fenginn til starfans. Undirbúningsfundur var haldinn síðasta miðvikudag með ýmsum aðilum sem koma að hátíðinni.
Dagskráin verður glæsileg líkt og undanfarin ár og verður mikið lagt upp úr því að virkja bæjarbúa með skipulögðum hætti. Sundlaugarpartý, bryggjuball, ýmsar sýningar og uppákomur, tónleikar, skemmtisigling, kappróður, stórdansleikir, leiktæki, heimsóknir í fyrirtæki og ýmsar uppákomur verða líkt og verið hefur en að sögn Þórarins verða einnig ýmsar nýjungar sem kynntar verða þegar nær dregur en endanleg dagskrá verður tilbúinn 10. maí.
Bænum verður m.a. skipt upp í hverfi eftir litum og verða bæjarbúar hvattir til þess að halda götugrill og skapa góða stemmningu í bænum. Sjómannadagurinn sjálfur, sunnudagurinn, verður haldinn með hefðbundnu sniði með sjómannamessu og hátíðahöldum við höfnina en sjómannafélögin sjá um þennan hluta.
Sjóarinn síkáti er bæjarhátíðin okkar og því mikilvægt að allir standi saman til þess að gera hana sem glæsilegasta.
Myndin var tekin á undirbúningsfundinum á miðvikudaginn.