Ţjóđháttakynning - hreindýrabúskapur, á sumardaginn fyrsta

  • Fréttir
  • 23. apríl 2009

Þjóðháttakynning - hreindýrabúskapur, verður í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a Grindavík, sumardaginn fyrsta 23. apríl frá kl. 15-17. Stefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi á Grænlandi fjallar um hreindýr á Grænlandi og í Noregi. Stefán er mikill ævintýramaður. Hann hefur búið á Grænlandi í mörg ár og rekur þar stórt hreindýrabú. Hér er því um einstakt tækifæri að fræðast um hreindýr og hreindýrabúskap.

Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja mun fjalla um sögu hreindýra á Reykjanesskaga. Hugmyndir eru um að koma upp hreindýrastofni á Reykjanesskaga.

Vonandi verða fjörugar umræður á eftir. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.

Í Salthúsinu, veitingahúsi er boðið upp á hreindýrasteik á góðu verði, sjá www.salthusid.is

Þjóðháttakynningin er liður í menningar- og viðburðadagskrá Saltfisksetursins og Grindavíkurbæjar ´09. Athugið að um breytta dagsetningu er að ræða 23. apríl í stað 2. maí sjá viðburðadagskrá á www.grindavik.is

Nánari upplýsingar gefur
Sigrún Jónsd. Franklín
verkefnastjóri
gsm 6918828
sjf@internet.is
www.sjfmenningarmidlun.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!