Lokahóf körfuknattleiksdeildar Grindavíkur verður haldið í Salthúsinu laugardaginn 25. apríl nk. Húsið opnar kl. 19:30. Í boði er þriggja rétta glæsilegur matseðill að hætti Láka.
Veislustjóri er enginn annar en körfuboltakempan Ólafur Þór Jóhannsson. Þá verða meistaraflokkar karla og kvenna með skemmtiatriði. Ýmislegt fleira verður til gamans gert. Boðið verður upp á söngvakeppvi á milli karlaliðsins, kvennaliðsins, þjálfarateymisins og stjórnarinnar.
Hljómsveitin Geimfararnir leikur undir og formaður dómnefndar er söngvari Geimfaranna, Dagbjartur Willardsson. Þá verður happdrætti, verðlaunaafhendingar o.fl. Að endingu voru svo dansleikur með hinum einu og sönnu grindvísku Geimförum.
Miðaverð á lokahóf: 5.900 kr. (setið í koníaksstofu). Upplýsingar veitir Einar Hannes í síma 896-2710. Miðaverð á ball er 2000 kr.