Fremsti bringusundskappi landsins, Jakob Jóhann Sveinsson, mætti á æfingu hjá sundeild UMFG fyrir skömmu. Hann gaf krökkunum góð ráð, fór yfir sundtökin og spjallaði við krakkana. Jakob Jóhann sá alveg um æfinguna og voru sundkrakkarnir afar ánægðir að fá einn fremsta íþróttamann þjóðarinnar í heimsókn.
Jakob Jóhann er margreyndur kappi, hefur tekið þátt í þrennum Ólympíuleikum og hefur sópað til sín verðlaunum hér heima og staðið sig með prýði erlendis. Hann er 26 ára.