Gamlir Grindvíkingar héldu því fram að veður líkt og var í gærdag,18 m/s að suðaustan og þar af meira, hefði áður fyrr bara verið nefnt ,,austanþræsingur". Í slíku veðri var þó ekki róðið á tímum árabátanna enda bara barningur að eiga við þræsinginn - sem alltaf hafði betur eins og vel má gera sér grein fyrir með því að berja meðfylgjandi mynd augum.
Þær voru teknar við Markhól síðdegis í gær. Myndavélinni var beint yfir Jónsbása þar sem Anlaby fórst í janúar árið 1902 - við svipaðar aðstæður.
Með sanni má segja að brimaldan stóra geti í austanþræsingi verið skelfileg, en hún getur einnig verið tilkomumikil og myndræn. Fleiri myndir á http://www.ferlir.is/?pageid=59