Nýtt sögu- og örnefnaskilti viđ Stórubót - Gönguferđ um Vellina

  • Fréttir
  • 17. apríl 2009

Grindavíkurbær og Saltfisksetrið vígja nýtt sögu- og örnefnaskilti á Gerðavöllum ofan við Stórubót í dag, laugardag. Af því tilefni er bæjarbúum og gestum boðið til rólegrar gönguferðar um Vellina og næsta nágrenni.

Á skiltinu er uppdráttur af svæðinu með öllum helstu minjum og örnefnum, auk texta um svonefnt Junkaragerði, viðverustað þýskra fiskimanna á 15. öld, Virki Englendinga þar sem lokaorrusta Grindavíkurstríðsins fór fram 10. júní árið 1532 (sem lauk með því að 15 virkismenn lágu í valnum), mannvirki tengd búskap Grindvíkinga fyrrum o.fl. Gangan hefst kl. 13:00 við Stóru-Bót hjá fjarskiptamastrinu.

Um er að ræða 6. skiltið í röð slíkra í Grindavík. Sjöunda skiltið verður vígt við Hraun austan Grindavíkur í septembermánuði n.k. (2009). Með því hefur meginhluti þéttbýlishverfa Grindavíkur verið teiknaður upp m.t.t. sýnilegra og sögulegra minja í tengslum við helstu örnefnin. Hugmyndin er og að nýta svo efnið til útgáfu fyrir þá sem vilja eignast uppdrættina á kortunum svo og til kennslu í grunnskólum bæjarins.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir