Sú nýjung verður á heimasíðu Grindavíkurbæjar að valinn verður Grindvíkingur vikunnar sem svarar nokkrum skemmtilegum spurningum. Valið á Grindvíking vikunnar er á ábyrgð ritstjóra heimasíðunnar. Sá fyrsti sem verður fyrir valinu er Sigurður Enoksson bakarameistari. Undanfarin misseri hefur Sigurður gegnt starfi formanns Arsenal-klúbbsins á Íslandi og hafði hann betur í kosningabaráttu við Inga Björn Albertsson, fyrrverandi Alþingismann og markahæsta leikmann Íslandsmótsins í knattspyrnu frá upphafi.
Tvisvar á ári heldur Sigurður, sem formaður klúbbsins, til Lundúna á Emirates Stadium, heimavöll Arsenal, til fundar við stuðningsmannaklúbba víðs vegar úr heiminum og svo er skroppið á leik í leiðinni. Þar eru rædd miðamál, hvernig til tekst með hópferðir, hvernig Arsenal getur gert betur í upplýsingaöflun fyrir stuðningsmannaklúbbana o.fl. Sigurður er nýkominn úr slíkri ferð ásamt gjaldkera klúbbsins, Grindvíkingnum Kjartani Fr. Adólfssyni.
Fullt nafn? Sigurður Enoksson.
Fjölskylduhagir? Hamingjusamlega kvæntur Ásgerði Helgu Kroknes Steinþórsdóttur og eigum við 3 yndisleg börn, Enok Steinar 17 ára Hrafnhildi Önnu 14 ára og Steinþór Guðmund 8 ára.
Starf? Bakarameistari hjá Hérastubbi Bakara.
Uppáhalds-
...maturinn? Eyvindur með hori (þ.e.a.s kjöt í karrýi).
...drykkurinn? Ískalt Sinalco.
...staðurinn? París.
...leikarinn? Kevin Costner (Dansar við úlfa Tær snilld).
...íþróttamaðurinn? Michael Jordan.
...liðið? Arsenal og Grindavík.
Ef þú værir einn á eyðieyju í eitt ár. Hvaða fimm hluti tækir þú með þér? Spilastokk, fótbolta, spegil,sippuband og brauð. Tek báða endana af brauðinu og borða það endalaust.
Hvað er best við Grindavík? Gott fólk og yfirleitt rólegur staður.
Hvernig tilfinning var að horfa á lokasekúndurnar í leik Grindavíkur og KR? Sá þær sem betur fer ekki (hefði fengið slag).
Hvernig var að hitta stuðningsmenn Arsenal úr öllum heimsálfum? Það er mjög áhugavert að hitta fólk úr öllum heimsálfum sem halda með Arsenal FC og allir hafa sama áhugamál. Arsenal FC eru bestir!
Hversu mikið starf er að vera formaður Arsenalklúbbsins? Það getur verið strembið á köflum, sérstaklega í byrjun tímabils þegar verið að senda út greiðsluseðla og svo þegar verið er að pakka öllum varningnum til félagsmanna sem eru nú að nálgast 1500. En það er gefandi og skemmtilegt. Er mikið að aðstoða við að ná í miða á leiki sem hefur gengið vel í vetur og einnig aðstoða fólk við að finna sér hótel og þess háttar erlendis. Að vera formaður gefur manni tækifæri að hitta alls konar fólk alls staðar af landinu sem er tengt knattspyrnu og heldur með Arsenal. Getur verið mikið að snúast í kringum þetta en ég hef sem betur fer frábæra konu sem hjálpar mér mikið og margt af þessu gæti ég ekki án hennar hjálpar.
Eitthvað að lokum? Það gengur bara betur næst í körfunni!! Vonandi verður manni fyrirgefið að fá ekki slag annan í páskum!
Efri Mynd: Sigurður í embættiserindum á Emirates stadium fyrir Arsenalklúbbinn á Íslandi en hér tekur hann á móti gjöf frá Keith Edelmann, einum af yfirmönnum félagsins, í tilefni 25 ára afmæli klúbbsins á Íslandi 2007.
Neðri mynd: Stjórn Arsenalklúbbsins á Íslandi eftir aðalfund 2008.