Grindavíkurbær og Slökkvilið Grindavíkur undirrituðu tímamótasamning í gær um tryggingu slökkviliðsmanna vegna slysa við slökkviliðsstörf og að slökkviliðsmenn falla undir starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri, og Petrína Baldursdóttir, formaður bæjarráðs, undirrituðu samninginn fyrir hönd Grindavíkurbæjar, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar, en Sigurður Halldórsson og Hjörtur Waltersson fyrir hönd starfsmanna Slökkviliðs Grindavíkur.
Samningurinn felur í sér sérákvæði varðandi tryggingu vegna slysa við slökkvistörf. Grindavíkurbær ábyrgist fjögurra vikna biðlaun vegna slysa við slökkvistörf, ef slysatrygging launþega hjá vinnuveitanda viðkomandi slökkviliðsmanns, greiðir ekki biðlaun þann tíma. Greiðslur biðlauna miðast við frá þeim degi er slys verður og við meðaltalslaun síðustu 3ja mánaða þess slasaða. Að fjórum vikum liðnum koma greiðslur úr slysatryggingu slökkviliðsmanna Grindavíkurbæjar, eins og tryggingin kveður á um, með vikulegri greiðslu, að hámarki til 48 vikna. Einnig innifelur slysatryggingin dánar- og örorkubætur.
Eftir undirskriftina buðu slökkviliðsmenn bæjarstjóra og formanni bæjarráðs í kaffi og rjómavöfflur og svo var tekinn rúntur um bæinn á nýja slökkvibílnum.
Ásmundur Jónsson slökkviliðsstjóri, er afar ánægður með þennan tímamóta samning enda sá fyrsti sinnar tegundar á landinu, eftir því sem næst verður komist.
,,Samningurinn þýðir að nú vita slökkviliðsmenn nákvæmlega hvar þeir standa þegar þeir mæta til vinnu gagnvart eigin öryggi og tryggingum. Þetta er stór hópur fjölskyldumanna sem ganga ekki lengur út í óvissuna. Slökkviliðsstarf er talið eitt hið hættulegasta sem unnið er á friðartímum. Við viljum þakka bæjaryfirvöldum fyrir góða samvinnu og skilning á okkar starfi, þetta var unnið á faglegu nótum og allir eru sáttir," sagði Ásmundur jafnframt.