Fyrir hönd Grindavíkurbæjar vil ég þakka menningar- og bókasafnsnefnd, frístunda- og menningarfulltrúa og öllum þeim fjölmörgu sem komu að glæsilegri menningarviku í Grindavík. Dagskráin endurspeglaði hversu kröftugt og fjölhæft listafólk býr í okkar samfélagi og aðsóknin sýnir að bæjarbúar kunna vel að meta þessa nýbreytni.
„Menning er mannsins gaman", það sýndi sig greinilega í þeim fjölbreyttu viðburðum sem boðið var upp á. Þessir velheppnuðu menningardagar voru skemmtilegt krydd í tilveruna og auðguðu samfélagið.
Stefnt er að því að gera menningarvikuna að árlegum viðburði.
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
bæjarstjóri