Stjörnhópurinn á heilsuleikskólanum Króki heimsótti Tónlistarskóla Grindavíkur á dögunum. Nokkrir ungir nemendur Tónlistarskólans spiluðu á hljóðfærin sín fyrir leikskólakrakkana. Kennarar skólans leyfðu leikskólakrökkunum að prófa ýmis hljóðfæri eins og trompet, þverflautu, fiðlu, gítar og trommur. Börnin voru mjög áhugasöm og spennt að prófa hljóðfærin.
Þetta var frábær og vel heppnuð heimsókn og eftir því sem fram kemur á vef Króks fengu krakkarnir frábærar móttökur.
Fleiri myndir á http://krokur.skolar.is/Myndasafn/462/default.aspx